|
Skrifað af Agla Snorradóttir
|
|
Nautakjöt til sölu
Í Vegatungu seljum við galloway-nautakjötið okkar úrbeinað í ¼, ½ og 1/1 skrokkum.
Erum að taka niður pantarnir.
Vinsamlega sendið fyrirspurnir og pantanir á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Hér á myndinni má sjá hvernig kjötið er afgreitt frá okkur.
Allt kjötið er vacumpakkað (pakkað í lofttæmdar umbúðir) og merkt með nafni steikur og þyngd hennar.
Myndin er af steikum úr 1/4 skrokk en ef tekinn er 1/2 skrokkur eru steikurnar helmingi stærri.
Hægt er að kaupa 1/2 eða 1/4 skrokk af beinlausu kjöti.
Minni einingar er ekki hægt að fá.
1/4 úr skrokk er um 40-50 kg. Kjötið er unnið af fagmönnum í sláturhúsi, pakkað í lofttæmdar umbúðir (vacumpakkað) og afhent ófryst.
Kjötið er unnið í steikur, gúllas og hakk. Fjórðungurinn skiptist u.þ.b niður í:
Steikur eru um 12-14 kg alls og eru: Rib eye u.þ.b. 2 kg, Entrecote (file) u.þ.b. 2 kg, Sirlonsteik u.þ.b. 2 kg, Lund u.þ.b. 0,6 kg, Innralæri u.þ.b. 1,3 kg, Flatsteik u.þ.b. 1,5 kg og Klumpur u.þ.b. 1 kg.
Gúllas sem er um 8-10 kg pakkað í stærðir eftir óskum hvers og eins t.d. 800 gr.
Hakkið er um 20 kg af 1/4 skrokk og pakkað í lofttæmdar umbúðir eftir óskum frá c.a. 700 gr.
Verð pr. kg er 1870.- kr.
og er miðað við staðgreiðslu þegar kjötið er afhent.
Kjötið er afhent í Vegatungu en einnig er hægt að fá það afhent í Reykjavík. skv. samkomulagi.
Ef þú hefur áhuga á að vera með í þessari umferð vinsamlega sendu tölvupóst á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Nánari upplýsingar gefur Friðrik í síma 895-6193.
Áhugasamir geta fundið fínar uppskriftir á www.kjöt.is
Hlökkum til að heyra frá ykkur,
Agla og Friðrik
|
|
Síðast uppfært ( Monday, 19 September 2011 )
|
|
|
Skrifað af Agla Snorradóttir
|
|
Nú er vorið komið í sveitinni, fuglarnir syngja hátt, grasið að teygja sig upp úr jörðinni. Hefðbundin sveitastörf eru farin í gang. Nú er t.d. verið að bera skítinn á túnin, þessa dagana.
Svo er hestamennskan í gangi líka eins og sjá má af klippimyndinni.
|
|
Síðast uppfært ( Wednesday, 06 May 2009 )
|
|
|
Seinasti laugardagurinn í ágúst |
|
Skrifað af Agla Snorradóttir
|
|
Héðan er allt gott að frétta. Haustrigningarnar byrjaðar. Skólinn er byrjaður hjá okkur mægðunum og vetrardagskráin að komast í gang.
Gróðurinn er aðeins að byrja að sýna haustlitina og öll tré eru annað hvort full af berjum eða fræhúsum eins og sjá má á birkinu.
Í dag fengum við 10 hænuunga og nú er spennandi að vita hvað hænurnar eru margar og hanarnir margir, það kemur í ljós á næstu vikum. Yngri heimasætan byrjaði strax að sinna ungunum.
Friðrik og Freydís eru enn að temja hestana og gengur bara vel. Hér er Mjallhvít með hnakk í fyrsta skipti og fannst það dálítið skrítið.
|
|
Síðast uppfært ( Saturday, 30 August 2008 )
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 4 af 12 |